Um okkur

Hugprent varð til úr ástríðu tveggja vina fyrir 3D prentun og hönnun.

Það sem byrjaði sem áhugamál heima hjá okkur hefur þróast í spennandi verkefni þar sem við getum deilt okkar ást á 3D prentun með öðrum. Þegar við fórum að prenta hluti fyrir okkar eigin heimili og fengum jákvæð viðbrögð frá vinum og fjölskyldu, áttuðum við okkur á því að hér gæti verið tækifæri til að skapa eitthvað meira.

Hjá Hugprent leggjum við áherslu á gæði og siðferði í öllum okkar verkefnum. Við notum eingöngu hönnun sem við höfum viðskiptaleyfi fyrir, höfum hannað sjálf, eða eru í almenningseigu. Þetta tryggir að allir – hönnuðir, viðskiptavinir og við – njóti góðs af samstarfinu.

Markmið okkar er einfalt: að bjóða upp á vandaðar og einstakar vörur á sama tíma og við getum haldið áfram að læra, þróast og stækka okkar 3D prentunarverkstæði. Hver sala hjálpar okkur að fjármagna betri búnað og fleiri möguleika, sem gerir okkur kleift að bjóða enn betri þjónustu

Shopping Cart
Scroll to Top